Rúdolf veggmynd á striga
er handunnin eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Við eftirgerð á málverkinu málar listamaðurinn í myndina eftir prentun og áritar hana að því loknu. Með því að mála í hverja mynd eftir útprentun gerir listamaðurinn myndina sérstaka sem tryggir að engin mynd er nákvæmlega eins. Myndin er prentuð á striga í stærðinni 80×80 cm í bestu fáanlegum gæðum. Hún er afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Frábær tækisfærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er.
Myndlistamaðurinn Olafsson er þekktur fyrir náttúrulífs- og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfossi ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu. Nánari upplýsingar um listamanninn Olafsson er að finna hér.
Rúdolf
Hreindýr þau sem nú lifa á Íslandi voru flutt inn frá Finnmörku í Noregi árið 1787 og lifa eingöngu á Austfjörðum og hálendinu þar í kring. Hreindýr, líkt og refurinn þrýfst best á norðlægum slóðum og í köldu loftslagi. Þau eru falleg og tignarleg hjarðdýr og má oft sjá stóra flokka á Fagradal og nú jafnvel niður undir mannabygðir á Austfjörðum. Árlega eru veidd yfir 1000 dýr og þykir kjötið af þeim mikill veislumatur. Skinnið er einnig notað í ýmiskonar fatnað, einkum til ferðamanna. Kannski má segja að hreyndýrin séu þekktust fyrir að draga sleða jólasveinsins. Þar fer fremst í flokki eitt þekktasta dýr sögunnar, Rúdolf.
Rúdolf veggmynd á striga. Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.