Persónuverndarstefna Olafssonart.is

Olafssonart er umhugað um öryggi þeirra persónuupplýsinga sem vefsíðan meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu olafssonart.is kemur fram hvernig og í hvaða tilgangi er farið með persónuupplýsingar viðskiptavina. Við viljum að viðskiptavinir okkar séu upplýstir um það hvernig við vinnum með persónuupplýsingar.
Persónuupplýsingarnar eiga við um vefsíðu og netverslun á vefslóðinni olafssonart.is. Öll samskipti á vefsíðunni fara í gegnum SSL dulkóðun. Hægt er að senda fyrirspurn um meðferð persónuupplýsinga vefsíðunnar á netfangið olafsson@olafssonart.is

Persónuupplýsingar og meðhöndlun þeirra

Við vinnum með ákveðnar persónuupplýsingar sem þú sem viðskiptavinur veitir okkur, en upplýsingarnar notum við til þess að geta veitt þér sem besta þjónustu. Við höldum ekki utan um upplýsingarnar lengur en nauðsynlegt er en okkur ber t.d. að geyma upplýsingar um vörukaup og greiðslur í minnst 7 ár samkvæmt lögum um bókhald.
Samkvæmt lögum um persónuvernd nr. 90/2018 hefur þú rétt til að óska eftir afriti af persónuupplýsingunum þínum, leiðrétta þær eða afturkalla

Tengiliðir
Við þurfum að halda utan um kennitöluna þína, nafnið þitt, heimilisfang, netfang og símanúmer til þess að geta:

  • Látið þig vita þegar pöntun er tilbúin
  • Látið þig vita þegar pöntun er send af stað til þín
  • Gert löglega reikninga fyrir vöru eða þjónustukaupum
  • Haft samband við þig vegna þjónustu eða vörukaupa þinna
  • Sent þér auglýsingar og tilboð ef þú hefur skráð þig á póstlista. (Þér stendur alltaf til boða að afskrá þig af póstlista)

Við látum þriðja aðila þessar upplýsingar aldrei í té nema í þeim tilvikum sem það er nauðsynlegt vegna t.d. sendinga/flutninga á vörum.

Upplýsingar um greiðslur
Við vistum engar kortaupplýsingar á okkar netþjónum, en þegar þú greiðir fyrir vörukaup í netverslunum okkar fer greiðslan fram á öruggri greiðslusíðu kortafyrirtækis / færsluhirðis sem síðan sendir okkur staðfestingu um greiðsluna.
Upplýsingar um vörukaup þín eins og hvaða vörur þú verslaðir, hvort þú hafir greitt fyrir þær, hvaða upphæð þú greiddir ásamt upplýsingum um þig sem tengilið eru vistaðar hjá okkur. Þessar upplýsingar eru notaðar til að afgreiða pöntunina þína miðað við þær leiðir og þá þjónustu sem þú valdir við frágang á henni.

Tæknilegar upplýsingar
Þegar þú heimsækir vefsíðu og netverslun okkar þá er ákveðnum gögnum safnað sjálfkrafa. Þessi gögn innihalda upplýsingar eins og t.d. upplýsingar um IP tölu, netvafra, tölvukerfi og fl. Upplýsingar eru einnig skráðar um það hvernig þú tengdist vefsíðunni (í gegnum hlekk), frá hvaða vefsíðu þú tengist, tíma og lengd heimsóknar þinnar, hvaða síður þú skoðar og hvaða vörur eða þjónustu þú keyptir ef það á við. Þessar upplýsingar eru mögulega skráðar með notkun þinni á vefkökum (cookies). Nánari upplýsingar um vefkökur.

Aðrar upplýsingar
Við vinnum með ópersónugreinanlegar upplýsingar eins og tölfræðiupplýsingar. Þær er ekki hægt að rekja til þín sem viðskiptavinar en þetta eru t.d. upplýsingar um fjölda pantana, heimsóknir á vefsíðu, notkun afslátta og fl.