Skrúður veggmynd á striga
er handunnin eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Við eftirgerð á málverkinu málar listamaðurinn í myndina eftir prentun og áritar hana að því loknu. Með því að mála í hverja mynd eftir útprentun gerir listamaðurinn myndina sérstaka sem tryggir að engin mynd er nákvæmlega eins. Myndin er prentuð á striga í bestu fáanlegum gæðum. Hún er afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Frábær tækisfærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er.
Myndlistamaðurinn Olafsson er þekktur fyrir náttúrulífs- og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfossi ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu. Nánari upplýsingar um listamanninn Olafsson er að finna hér.
Skrúður
Klettótta eyjan
Skrúður rís brattur upp úr sjónum rétt austur af Fáskrúðsfirði í nágrenni við eina flata, litla eyju og sker bera nöfnin Andey og Æðarsker. Inní Skrúði sjálfum eru tveir risa-stórir hellar, þar sem menn dvöldust á veiðitímanum. Fólk safnaði eggjum og veiddi fugla á eyjunni og gerir enn þann dag í dag en þar búa m.a. á annað hundrað þúsund lundahjón.
Skrúður veggmynd á striga. Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.