Málverk-veggmynd á pappír Norðurljós 30X30
kr.9,990 – kr.14,490
Frábær tækifærisgjöf fyrir hvaða tilefni sem er. Kauptu 3 mismunandi veggmyndir á pappír 30×30 cm án ramma og borgaðu fyrir 2. Notið asláttarkóða: tilbod í innkaupakörfu þegar gengið er frá greiðslu.
- Lýsing
- Frekari upplýsingar
Lýsing
Málverk-veggmynd á pappír Norðurljós 30X30 cm
Eitt af því merkilegasta sem maður verður vitni að á dimmum vetrarnóttum eru norðurljósin. Á þessari mynd reyni ég að gera þeim skil og sýna jafnframt Snæfellsjökul og Búðakirkju en báðir staðirnir eru mér mjög hjartfólgnir. Það er erfitt að lýsa í málverki því ljósaspili sem skin norðurljósanna býður upp á en ég varð að reyna. Best er að fara og skoða þau með eigin augum ef tækifæri býðst. Myndin mín er tilraun til að fanga eitt stórbrottnasta náttúruundur sem ég hef orðið vitni að.
Þessi mynd er eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Myndin er prentuð á vandaðan sýrufrían 310 gsm2 pappír í stærðinni 30×30 cm í bestu fáanlegum gæðum. Myndin er árituð af listamanninum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Einnig er hægt að fá myndina afhenta innrammaða í 40×50 cm myndaramma gegn aukagjaldi. Frábær tækifærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem
er.
Málverk-veggmynd á pappír Norðurljós 30X30 cm.
Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.
Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.
Frekari upplýsingar
Þyngd | 0.500 kg |
---|---|
Ummál | 40 × 8 × 8 cm |
Myndarammi | Nei |
Myndefni | Íslensk náttúra |
Prentun | Ciclee-Fruss prentun á pappír |
Stærð | 30X30 Cm |
Paper | Sýrufrír 310 gsm2 |
Upplag | Ótakmarkað |
Valkostir | Án ramma, Í ramma |