Málverk-veggmynd á striga Rúdolf 40X40
kr.39,990
Frábær brúðkaupsgjöf eða fyrir hvaða tilefni sem er.
- Lýsing
- Frekari upplýsingar
Lýsing
Málverk-veggmynd á striga Rúdolf 40X40 cm
Hreindýr þau sem nú lifa á Íslandi voru flutt inn frá Finnmörku í Noregi árið 1787 og lifa eingöngu á Austfjörðum og hálendinu þar í kring. Hreindýr, líkt og refurinn þrífst best á norðlægum slóðum og í köldu loftslagi. Þau eru falleg og tignarleg hjarðdýr og má oft sjá stóra flokka á Fagradal og nú jafnvel niður undir mannabygðir á Austfjörðum. Árlega eru veidd yfir 1000 dýr og þykir kjötið af þeim mikill veislumatur. Skinnið er einnig notað í ýmiskonar fatnað, einkum til ferðamanna. Kannski má segja að hreyndýrin séu þekktust fyrir að draga sleða jólasveinsins en þar fer fremst í flokki eitt þekktasta dýr sögunnar, Rúdolf.
Þessi mynd er handunnin eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Við eftirgerð á málverkinu málar listamaðurinn í myndina eftir prentun og áritar hana að því loknu. Með því að mála í hverja mynd eftir útprentun gerir listamaðurinn myndina sérstaka sem tryggir að engin mynd er nákvæmlega eins. Myndin er prentuð á striga í stærðinni 40×40 cm í bestu fáanlegum gæðum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum Upplag: 250 númeruð eintök. Frábær tækisfærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er. Myndlistamaðurinn Olafsson er þekktur fyrir náttúrulífs og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfoss ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu.
Málverk-veggmynd á striga Rúdolf 40X40.
Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.
Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.
Frekari upplýsingar
Þyngd | 0.500 kg |
---|---|
Ummál | 50 × 8 × 8 cm |
Myndarammi | Nei |
Myndefni | Myndir af dýrum |
Prentun | Ciclee-Fruss Prentun á striga |
Stærð | 40X40 CM |
Upplag | 250 númeruð eintök |