Málverk-veggmynd á striga Ísbjörn 80X80

Málverk-veggmynd á pappír Ísbjörn

Málverk-veggmynd á striga Ísbjörn 80X80

kr.94,900

In stock

kr.94,900

Frábær brúðkaupsgjöf eða fyrir hvaða tilefni sem er.
Availability: 10 á lager SKU: 801238
Skoða körfu

Lýsing

Málverk-veggmynd á striga Ísbjörn 80X80 cm

Ísbirnir, stæðstu bjarndýr jarðar, hafa komið hingað til lands annað slagið allt frá því að landið byggðist og trúlega mun lengur. Íslendingar hafa ávalt tekið frekar illa á móti þessu stóra rándýri þegar það hefur flækst hingað til lands enda dæmi til um að þeir hafi ráðist á fólk. Ísbirnirnir hafa venjulega verið drepnir, enda mikill fengur í slíkri skepnu í harðbýlu landi þar sem kjör voru kröpp. Nú eru hins vegar tímar betri og því ástæðulaust að drepa dýrin nema mannslífum eða verðmætum sé ógnað.
Vorið 1993 var samþykkt á Alþingi frumvarp sem meðal annars kveður á um að bannað sé að veiða ísbirni á hafís eða sundi, en heimilt að fanga lifandi björn og flytja þangað sem hann veldur ekki usla.

Þessi mynd er handunnin eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Við eftirgerð á málverkinu málar listamaðurinn í myndina eftir prentun og áritar hana að því loknu. Með því að mála í hverja mynd eftir útprentun gerir listamaðurinn myndina sérstaka sem tryggir að engin mynd er nákvæmlega eins. Myndin er prentuð á striga í stærðinni 80×80 cm í bestu fáanlegum gæðum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Upplag: 100 númeruð eintök. Frábær tækisfærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er. Myndlistamaðurinn Olafsson er þekktur fyrir náttúrulífs og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfoss ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu.

Málverk-veggmynd á striga Ísbjörn 80X80.

Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.

Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.

Additional information

Weight 1.500 kg
Dimensions 90 × 8 × 8 cm
Myndarammi

Nei

Myndefni

Myndir af dýrum

Prentun

Ciclee-Fruss Prentun á striga

Stærð

80X80 CM

Upplag

100 númeruð eintök