Málverk-veggmynd Jökulsárlón 50X50
kr.14,990
Frábær afmælisgjöf eða fyrir hvaða tilefni sem er.
- Lýsing
- Frekari upplýsingar
Lýsing
Málverk-veggmynd Jökulsárlón 50X50 cm
Á ferðum mínum um suðurströnd Íslands stoppa ég alltaf við Jökulsárlón, sama á hvaða árstíma og sama á hvaða tíma sólahringsins það er. Myndin sem við manni blasir við lónið er stórkostleg. Risa jöklar veltast um í lóninu á leið til sjávar og oft má sjá þar sel í leit að fiski ef vel er að gáð. Á síðari hluta sumars eru litirnir oft magnaðir og nær ógerlegt að setja þá á striga. Bláminn sem fylgir miðmætur ljósinu er engu líkur og skíman af hækkandi sól setur ævintýralegan blæ á umhverfið. Ekki spillir ef tunglsljósið setur smá speglun á vatnið og kristalglampa á ísjakana.
Þessi mynd er eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Myndin er prentuð á vandaðan sýrufrían 310 gsm2 pappír í stærðinni 50×50 cm í bestu fáanlegum gæðum. Myndin er árituð af listamanninum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Frábær tækifærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er.
Málverk-veggmynd Gullfoss 50X50.
Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með Íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.
Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.
Frekari upplýsingar
Þyngd | 1.500 kg |
---|---|
Ummál | 60 × 8 × 8 cm |
Myndarammi | Nei |
Myndefni | Íslensk náttúra, Landslagsmyndir |
Prentun | Ciclee-Fruss prentun á pappír |
Stærð | 50X50 Cm |
Paper | Sýrufrír 310 gsm2 |
Upplag | Ótakmarkað |