Málverk-veggmynd í ramma Geysir 14X14
kr.4,990
Frábær tækifærisgjöf í fallegum ramma.
- Lýsing
- Frekari upplýsingar
Lýsing
Málverk Geysir-veggmynd í ramma 14X14 cm
Að búa á Íslandi og hafa ekki málað mynd af Geysi gekk hreinlega ekki upp. Því ákvað ég að mála mynd af þessum heimsfræga goshver. Ennig var gott að skoða Strokk, nágranna Geysis sem enn er á fullu. Geysir hefur átt góð ár sem og slæm ár, og hefur hann fengið að finna fyrir áhrifum jarðskjálfta á svæðinu. Þess má get að enska orðið „geyser“ kemur frá nafninu Geysir, og er notað yfir alla aðra goshveri. Fyrir þann sem aldrei hefur séð goshver, getur upplifunin verið yfirbærileg. Þetta íslenska kennileiti er sannarlega ótrúlegt og ólýsanlegt náttúrufyrirbrigði. Á göngu í kringum hverinn, finnur maður fyrir krafti jarðarinnar undir fótum manns.
Þessi mynd er eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Myndin er prentuð á vandaðan sýrufrían 310 gsm2 pappír í stærðinni 14×14 cm í bestu fáanlegum gæðum.
Myndin er árituð af listamanninum og afhent innpökkuð í fallegum ramma með gleri. Opið upplag. Frábær tækifærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er.
Málverk Geysir-veggmynd í ramma 14X14.
Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.
Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.
Frekari upplýsingar
Þyngd | 0.1 kg |
---|---|
Myndarammi | Já |
Myndefni | Landslagsmyndir |
Prentun | Ciclee-Fruss prentun á pappír |
Stærð | 14X14 Cm |
Paper | Sýrufrír 310 gsm2 |
Upplag | Ótakmarkað |