Swans over Thingvellir Art print on canvas
Fólk með sameiginlega stefnu og samkennd getur náð áfangastað fljótar og auðveldar með því að ferðast í trausti hvert annars. Þegar álft dettur úr oddaflugi finnur hún skyndilegan mótvind og viðnám sem fylgir því að vera ein á flugi. Hún færir sig því fljótt til baka í röðina til að notfæra sér uppdrift frá þeim sem á undan eru. Ef við tökum álftir okkur til fyrirmyndar þá fylgjum við fordæmi þeirra og stefnum þangað sem við viljum fara. Við þiggjum hjálp annarra og hjálpumst að. Þegar forystufuglinn þreytist snýr hann til baka í hópinn og önnur <a href="/en/“https://is.wikipedia.org/wiki/%C3%81lft“/" target="“_blank“" rel="“noopener" noreferrer“>álft</a> flýgur í fararbroddi. Það borgar sig oft að skiptast á við erfiðu verkin og deila leiðtogahlutverkinu. Eins og álftir er fólk háð hæfni, getu og einstæðri blöndu gáfna, hæfileika og eiginleika hvert annars. Álftahópurinn kvakar á fluginu til að hvetja þær sem eru í framlínunni til þess að halda einbeitingunni. Við verðum að tryggja að orð okkar og athafnir séu uppörvandi því að í hvetjandi andrúmslofti eru afköstin mun meiri en ella. Eins og álftirnar stöndum við saman á erfiðum tímum á sama hátt og þegar við erum sterk.
Oddaflug er handunnin eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson.
Við eftirgerð á málverkinu málar listamaðurinn í myndina eftir prentun og áritar hana að því loknu. Með því að mála í hverja mynd eftir útprentun gerir listamaðurinn myndina sérstaka sem tryggir að engin mynd er nákvæmlega eins. Myndin er prentuð á striga í bestu fáanlegum gæðum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Frábær tækisfærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er.
Myndlistamaðurinn Olafsson er þekktur fyrir náttúrulífs og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfoss ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu.
Oddaflug veggmynd á striga<
It is simple and convenient to buy this picture here on the site. As soon as it is ready to be processed, you will be notified via email. You can pick up the product at the artist’s studio or have it sent home by mail to most country’s in the world. The processing time is usually 1-2 business days, but can shorter / longer in some cases. You can pay for the product by bank transfer, with cash or credit card on delivery at the studio or in a simple way here on the site through a secure payment page.
About the artist
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.