Málverk-veggmynd á striga Norðurljós 80X80

Málverk-veggmynd á striga Norðurljós 80X80

kr.94,900

In stock

kr.94,900

Frábær brúðkaupsgjöf eða fyrir hvaða tilefni sem er.
Availability: 10 á lager SKU: 8012312
Skoða körfu

Lýsing

Málverk-veggmynd á striga Norðurljós 80X80 cm

Eitt af því merkilegasta sem maður verður vitni að á dimmum vetrarnóttum eru norðurljósin. Á þessari mynd reyni ég að gera þeim skil og sýna jafnframt Snæfellsjökul og Búðakirkju en báðir staðirnir eru mér mjög hjartfólgnir. Það er erfitt að lýsa í málverki því ljósaspili sem skin norðurljósanna býður upp á en ég varð að reyna. Best er að fara og skoða þau með eigin augum ef tækifæri býðst. Myndin mín er tilraun til að fanga eitt stórbrottnasta náttúruundur sem ég hef orðið vitni að.

Þessi mynd er handunnin eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Við eftirgerð á málverkinu málar listamaðurinn í myndina eftir prentun og áritar hana að því loknu. Með því að mála í hverja mynd eftir útprentun gerir listamaðurinn myndina sérstaka sem tryggir að engin mynd er nákvæmlega eins. Myndin er prentuð á striga í stærðinni 80×80 cm í bestu fáanlegum gæðum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Upplag: 100 númeruð eintök. Frábær tækisfærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er. Myndlistamaðurinn Olafsson er þekktur fyrir náttúrulífs og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfoss ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu.

Málverk-veggmynd á striga Norðurljós 80X80.

Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.

Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.

Additional information

Weight 1.5 kg
Dimensions 90 × 8 × 8 cm
Myndarammi

Nei

Myndefni

Íslensk náttúra

Prentun

Ciclee-Fruss Prentun á striga

Stærð

80X80 CM

Upplag

100 númeruð eintök