Málverk-veggmynd á striga Kría 80X80

Málverk-veggmynd á striga Kría

Málverk-veggmynd á striga Kría 80X80

kr.94,900

In stock

kr.94,900

Frábær brúðkaupsgjöf eða fyrir hvaða tilefni sem er.
Availability: 10 á lager SKU: 8012310
Skoða körfu

Lýsing

Málverk-veggmynd á striga Kría 80X80 cm

Krían er spengilegur og tígulegur fugl af þernuætt. Á sumrin er kría með svarta hettu frá goggrótum og aftur á hnakka. Að öðru leyti er hún blágrá. Hvít rák er undir kollhettunni og hún er hvít á stéli með svartyddar handflugfjaðrir.
Krían er afbragðs flugfugl, hún andæfir yfir vatni og steypir sér síðan eldsnöggt niður eftir síli. Hún er þekkt fyrir öflugan lofthernað í varplandi sínu og ver ekki aðeins eigin afkvæmi fyrir ræningjum, heldur njóta aðrir fuglar einnig góðs af að verpa í nágrenni hennar.
Ég man vel eftir ferðum mínum um landið þar sem synir mínir voru að leika sér nálægt kríuvarpi. Manandi hvor annan að hlaupa nær, æpandi, sveiflandi prikum yfir höfði til að kríurnar „goggi ekki gat á höfuðið.” Eins og þeir kölluðu það. Þessi merkilegi lauflétti farfugl ferðast hvað lengst af öllum fuglum eða um 70.000 km á hverju ári. Hann upplifir því tvö sumur á hverju ári. Á myndinni má einnig sjá franska spítalann í Hafnarnesi. Hann var nýlega fluttur aftur á sinn upprunalega stað í Búðum á Fáskrúðsfirði.

Þessi mynd er handunnin eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Við eftirgerð á málverkinu málar listamaðurinn í myndina eftir prentun og áritar hana að því loknu. Með því að mála í hverja mynd eftir útprentun gerir listamaðurinn myndina sérstaka sem tryggir að engin mynd er nákvæmlega eins. Myndin er prentuð á striga í stærðinni 80×80 cm í bestu fáanlegum gæðum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Upplag: 100 númeruð eintök. Frábær tækisfærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er. Myndlistamaðurinn Olafsson er þekktur fyrir náttúrulífs og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfoss ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu.

Málverk-veggmynd á striga Kría 80X80.

Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.

Myndlistamaðurinn Olafsson

er þekktur fyrir náttúrulífs- og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfossi ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu. Nánari upplýsingar um listamanninn Olafsson er að finna hér.

Additional information

Weight 1.5 kg
Dimensions 80 × 8 × 8 cm
Myndarammi

Nei

Myndefni

Myndir af dýrum

Prentun

Ciclee-Fruss Prentun á striga

Stærð

80X80 CM

Upplag

100 númeruð eintök