Málverk-veggmynd á striga Geysir 20X20

Málverk-veggmynd Geysir 20X20

Málverk-veggmynd á striga Geysir 20X20

kr.14,990

In stock

kr.14,990

Frábær tækifærisgjöf í fallegum ramma.
Availability: 10 á lager SKU: 201236
Skoða körfu

Lýsing

Málverk-veggmynd á striga Geysir 20X20 cm

Að búa á Íslandi og hafa ekki málað mynd af Geysi gekk hreinlega ekki upp. Því ákvað ég að mála mynd af þessum heimsfræga goshver. Ennig var gott að skoða Strokk, nágranna Geysis sem enn er á fullu. Geysir hefur átt góð ár sem og slæm ár, og hefur hann fengið að finna fyrir áhrifum jarðskjálfta á svæðinu. Þess má get að enska orðið „geyser“ kemur frá nafninu Geysir, og er notað yfir alla aðra goshveri.
Fyrir þann sem aldrei hefur séð goshver, getur upplifunin verið yfirbærileg. Þetta íslenska kennileiti er sannarlega ótrúlegt og ólýsanlegt náttúrufyrirbrigði. Á göngu í kringum hverinn, finnur maður fyrir krafti jarðarinnar undir fótum manns.

Þessi mynd er handunnin eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Við eftirgerð á málverkinu málar listamaðurinn í myndina eftir prentun og áritar hana að því loknu. Með því að mála í hverja mynd eftir útprentun gerir listamaðurinn myndina sérstaka sem tryggir að engin mynd er nákvæmlega eins. Myndin er prentuð á striga í stærðinni 20×20 cm í bestu fáanlegum gæðum og afhent innrömmuð. Frábær tækisfærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er.
Myndlistamaðurinn Olafsson er þekktur fyrir náttúrulífs og landslagsmyndir sínar frá Íslandi. Á meðal verka hans eru málverk af stórbrotnum náttúruperlum landsins eins og Geysi og Gullfoss ásamt fjölda mynda af þeim dýrum sem lifa villt í landinu.

Málverk-veggmynd í ramma Geysir 20X20.

Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með Íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.

Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.

Additional information

Weight 2.0 kg
Dimensions 25 × 25 × 4 cm
Myndarammi

Myndefni

Íslensk náttúra, Landslagsmyndir

Prentun

Ciclee-Fruss Prentun á striga

Stærð

20X20 Cm

Upplag

Ótakmarkað