Málverk-veggmynd á pappír Rúdolf 50X50

Málverk-veggmynd Rúdolf

Málverk-veggmynd á pappír Rúdolf 50X50

kr.14,990

In stock

kr.14,990

Frábær afmælisgjöf eða fyrir hvaða tilefni sem er.

Availability: 10 á lager SKU: 6012316
Skoða körfu

Lýsing

Málverk-veggmynd á pappír Rúdolf 50X50 cm

Hreindýr þau sem nú lifa á Íslandi voru flutt inn frá Finnmörku í Noregi árið 1787 og lifa eingöngu á Austfjörðum og hálendinu þar í kring. Hreindýr, líkt og refurinn þrífst best á norðlægum slóðum og í köldu loftslagi. Þau eru falleg og tignarleg hjarðdýr og má oft sjá stóra flokka á Fagradal og nú jafnvel niður undir mannabygðir á Austfjörðum. Árlega eru veidd yfir 1000 dýr og þykir kjötið af þeim mikill veislumatur. Skinnið er einnig notað í ýmiskonar fatnað, einkum til ferðamanna. Kannski má segja að hreyndýrin séu þekktust fyrir að draga sleða jólasveinsins en þar fer fremst í flokki eitt þekktasta dýr sögunnar, Rúdolf.

Þessi mynd er eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Myndin er prentuð á vandaðan sýrufrían 310 gsm2 pappír í stærðinni 50×50 cm í bestu fáanlegum gæðum. Myndin er árituð af listamanninum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Frábær tækifærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er.

Málverk-veggmynd á pappír Rúdolf 50X50.

Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með Íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.

Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.

Additional information

Weight 1.500 kg
Dimensions 60 × 8 × 8 cm
Myndarammi

Nei

Myndefni

Myndir af dýrum

Prentun

Ciclee-Fruss prentun á pappír

Stærð

50X50 Cm

Pappír

Sýrufrír 310 gsm2

Upplag

Ótakmarkað