Málverk-veggmynd á pappír Refur 30X30

Málverk-veggmynd Refur

Málverk-veggmynd á pappír Refur 30X30

kr.9,990kr.14,490

In stock

kr.9,990kr.14,490

Frábær tækifærisgjöf fyrir hvaða tilefni sem er. Kauptu 3 mismunandi veggmyndir á pappír 30×30 cm án ramma og borgaðu fyrir 2.  Notið asláttarkóða: tilbod í innkaupakörfu þegar gengið er frá greiðslu.
SKU: 3012314
Hreinsa
Skoða körfu

Lýsing

Málverk-veggmynd á pappír Refur 30X30 cm

Hér er á ferðinni eitt það harðgerðasta dýr sem ég þekki og hefur búið hér mun lengur en maðurinn. Hann þolir frost allt að -50°C (-58°F). Refurinn er með hlýjan feld sem hentar vel í miklum kulda enda þolir hann frost allt að -50°C (-58°F). Refurinn fær hvítan feld í snjónum á veturnar en brúnan eða gráan feld yfir sumarið sem felur hann vel í trjálausu og hrjóstrugu landslagi Íslands. Refurinn gerir sér heimili neðanjarðar og lifir á því sem náttúran býður hverju sinni, fuglum, eggjum og jafnvel fiski ef til hans næst. Refurinn er í miklu uppáhaldi hjá mér, fallegt dýr, ímynd dugnaðar, styrks og útsjónarsemi. Refurinn er af mörgum talinn mikill vágestur í náttúrunni og er talin réttdræpur hvar og hvenær sem til hans næst fyrir utan friðlands á Hornströndum.

Þessi mynd er eftirgerð af samnefndu málverki eftir Olafsson. Myndin er prentuð á vandaðan sýrufrían 310 gsm2 pappír í stærðinni 30×30 cm í bestu fáanlegum gæðum. Myndin er árituð af listamanninum og afhent upprúlluð í pappírshólk sem tryggir varðveislu hennar í flutningum. Einnig er hægt að fá myndina afhenta innrammaða í 40×50 cm myndaramma gegn aukagjaldi. Frábær tækifærisgjöf, brúðkaupsgjöf, afmælisgjöf, innflutningsgjöf eða gjöf fyrir hvaða tilefni sem er.

Málverk-veggmynd á pappír Refur 30X30 cm.

Það er einfalt og þægilegt að kaupa þessa vöru hér á síðunni. Um leið og hún er tilbúin til afgreiðslu færð þú senda tilkynningu í tölvupósti. Þú getur sótt vöruna á vinnustofu listamannsins eða fengið hana senda heim með íslandspósti hvert á land sem er. Afgreiðslutími á myndum er yfirleitt 1-2 virkir dagar en getur verið styttri/lengri í einstökum tilvikum. Hægt er að greiða fyrir vöruna með bankamillifærslu, peningum eða greiðslukortum við afhendingu á vinnustofu eða á einfaldan hátt hér á síðunni í gegnum örugga greiðslusíðu.

Um listamanninn.
Olafsson fæddist í Reykjavík í janúar 1961. Hann fluttist austur á Fáskrúðsfjörð ungur að árum ásamt foreldrum sínum og 5 systkinum. Þar stundaði hann hefbundið nám innan um kraftmikkla náttúru í faðmi fjalla, djúpra dala og mikið dýralíf. Eftir skyldunám á Fáskrúðsfirði stundaði Olafsson nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem nú heitir Listaháskóli Íslands. Þaðan útskrifaðiast hann úr málaradeild árið 1981 eftir fjögura ára nám. Olafsson hefur haldið nokkrar sýningar bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna samsýningu á Kjarvalsstöðum 1981, einkasýningu í Djúpinu, á Horninu, 1982, á Fáskrúðsfirði, 1984, 2007 og 2015. Sýningu í Sláturhúsinu á Egilstöðum, 2007. Einkasýningu í Ottawa, Kanada, Constitution Square, 2007, samsýningu í Borgarnesi, CAOS, The Milk House Art Center 2012, samsýningu með RAT #1, 2019 og RAT #2, 2020 í Bríetartúni 11.

Additional information

Weight 0.500 kg
Dimensions 40 × 8 × 8 cm
Myndarammi

Nei

Myndefni

Myndir af dýrum

Prentun

Ciclee-Fruss prentun á pappír

Stærð

30X30 Cm

Pappír

Sýrufrír 310 gsm2

Upplag

Ótakmarkað

Valkostir

Án ramma, Í ramma